|
Þjónustumiðstöð Nu Skin | Hæðasmára 6 | 201 Kópavogur | S. 512 1600 |
|
![]() |
![]() |
|
|
Þjónustumiðstöðin Einfaldasta leiðin er að mæta á staðinn á afgreiðslutíma, leggja inn pöntun og fá vörurnar afhentar á staðnum. Hægt er að greiða með Visa, Eurocard, debetkorti, bankamillifærslu eða peningum. Hægt er að senda tölvupóst (pantanir (hjá)nuskin.is) með pöntun og gefa þá upp ID númer og kreditkort. Athugið að skrifa ekki allt kortanúmerið í tölustöfum eða að senda númerið í tveimur póstum þar sem tölvuþrjótar keyra leitarforrit sem leitar að kortanúmerum. Einnig er hægt að hringja inn pantanir á opnunartíma, en við mælum þó ekki með því að það sé gert í stórum stíl þar sem afgreiðsla á staðnum getur tafist fyrir vikið. |
Grænt númer (800 8541)
Eins og verið hefur er hægt að hringja á skrifstofu Nu Skin í Köben og tala þar við íslenska fulltrúa í dreifingaraðila þjónustu. Þar er hægt að leggja inn pantanir. Taka þarf fram hvort sækja á pantanirnar í Þjónustumiðstöðina eða fá þær sendar. Sendingarkostnaður frá Þjónustumiðstöð er 870,- en frá Hollandi er hann á bilinu 1.500,- til 2.000,- Sendingar fara frá Þjónustumiðstöð hvern virkan dag klukkan 11:00 og eru því komnar til viðtakanda næsta virka dag. Sendingar frá Hollandi taka að jafnaði 2 - 3 vikur. |
Pantanir á netsíðu Nu Skin Athugið að allt sem pantað er í gegnum netið er afgreitt frá íslenska lagernum í Hollandi og er því kostnaðarsamara og tekur umtalsvert lengri tíma en að nýta sér þjónustumiðstöðina. Áskriftir Nu Skin vörur Haldið er utan um allar Nu Skin áskriftir hjá Nu Skin Scandinavia í Köben. Tvisvar í mánuði, þann 12. og 22. hvers mánaðar eru áskriftirnar sendar til Þjónustumiðstöðvarinnar í Hæðarsmára og eru þar teknar saman til afhendingar á staðnum eða sendar til viðkomandi. Sendingarkostnaður er sá sami og þegar hringt er í Grænt númer. |
|
Áskriftir Pharmanex vörur Haldið er utan um allar Pharmanex áskriftir (svo og stakar Pharmanex pantanir) hjá Nu Skin Hollandi. Stakar pantanir þarf að panta á hollenska vef fyrirtækisins (á ensku) en bæði er hægt að setja áskriftir þar og með því að senda þær í tölvupósti til iceland (hjá) nuskin.com og dreifingaraðila þjónustan í Köben mun þá áframsenda áskriftina (og þýða ef með þarf) á Nu Skin Hollandi. Ofan á hverja Pharmanex pöntun frá Hollandi bætist við kostnaður vegna innflutnings og sendingar. Því höfum við hvatt fólk til að setja Pharmanex áskriftir á annan hvern mánuð og taka færri en stærri pantanir. |
![]() |
|
|
Þjónustumiðstöð Nu Skin | Hæðasmára 6 | 201 Kópavogur | S. 512 1600 Þjónustumiðstöð Nu Skin | Glerárgötu 26 | 601 Akureyri | S. 461 5200 |
Uppfært 30. desember 2009 © |